... - Hausmynd

...

Svitafýla Jóns..

Hæ,

Í gær var ég voða mikið að þrífa hérna heima og færa til húsgögn. Breytti öllu herbergi Eggerts og var alveg kófsveitt við þetta. Svo eftir skóla förum við út í bíl og þá spyr ég Eggert hvort það sé ekki einhver svitafýla af mér: "Mamma, ég held ég hafi aaaaaldrei fundið svitafýlu af þér en núna er svitafýla!" Svo hlógum við aðeins að þessu, hann vildi opna gluggann til að geta andað svo ég var að frjósa.

Svo náðum við í Stefán Matta og þegar ég teygi mig yfir hann til að spenna á hann beltið, segir hann: "Oj fýla, mamma!" Og Eggert hló þessi lifandisósköp. Svo komum við heim og  Stefán var ánægður með hvað mamman hafði verið dugleg um daginn og þá sagði Eggert: "Já Stefán, mamma er búin að vera svaka dugleg í dag og þess vegna lyktar hún eins og KÖLSKI"...

 

Mér fannst þetta alveg endalaust fyndið!

 

Kveðja

Friðrika 


Supermaaaaan!

Í dag keyrðum við fram hjá Hallgrímskirkju eftir leikskóla. Stefán Matti sá styttuna af Leifi Eiríkssyni og sagði: "Vá mamma, sjö! Hann er me gykkju. Þetta Súpermaaaaaan!"
Kv
Friðrika

Eldflaug!

Hæ,
Í dag keyrðum við til Keflavíkur. Þegar við komum að Álverinu hrópaði Stefán upp fyrir sig: "Eldflauuuuug!". Hann átti við rauðu og hvítu tankana sem standa hjá Álverinu... Man eftir svona eldflaugamyndum úr Tinnabókunum en ég veit ekki hvar hann hefur séð mynd af eldflaug.

Stór-mikið

Hæ,
Stundum förum við öll saman í sund. Okkur finnst það mjög gaman. Í dag fór ég í sund með Stefán og Eggert áður en Siggi var búinn í vinnunni. Eggert Aron fór í karlaklefann en Stefán Matti kom með mér í kvennaklefann. Í sturtunni sat Stefán Matti glaður í rauðum bala fullum af vatni. Svo benti hann á konu með mjög stór brjóst og sagði: "Vá, dóran!" Konan tók eftir að hann var að benda á sig. Ég sagði afsakandi: "Hann tók eftir að þú átt alveg eins sundbol og ég..."

Stefán notar þetta orð "dóran" til dæmis þegar ég er að skammta honum ís og hann vill fá mikið. Þá segir hann "dóran".

Kveðja
Friðrika


Pabbi er bestur

Hæ,
Um helgina kom stærsti maður heims til landsins frá Tyrklandi. Úff, hvað hann er stór. Stefán Matti var að skoða myndina af honum í Fréttablaðinu með starfsfólki Hótel Loftleiða og ég var að skýra fyrir honum að þetta væri stærsti maður í heimi. Hann horfði hugsi á myndina og sagði svo: "Pabbi minn er líka stór"... Hann er mjög mikill pabbastrákur.
Kv
Friðrika

Í apótekinu...

Hæ,

Við Eggert vorum stödd í apóteki og á meðan að við biðum las Eggert á miðana sem voru þarna í rekka... Svo spyr hann mig: "Mamma, hvernig getur það verið að munnþurrkur leiði til minnkaðar festu geirvartanna?".. Ha, segi ég og les líka:

MUNNÞURRKUR

*Eykur hættu á tannskemmdum

*Eykur líku á sveppasýkingu í munnholi

*Minnkar festu geirvartanna

 

"Nú, það hlýtur að vera vegna þess að..." Svo var ég ekki alveg að átta mig á þessu, las aftur og sá þá hvað stóð:

*Minnkar festu gervitanna

 

Við hreinlega veltumst um af hlátri yfir þessum misskilningi. Sáum fyrir okkur geirvörtur sem væru alveg við það að detta af bara... 

 

Kveðja

Friðrika 


Græni kallinn

Um daginn vorum við Eggert Aron að fara út í búð ásamt Stefáni Matta. Eggert Aron var að biðja Stefán Matta að segja "Græni kallinn" en það gat Stefán Matti alls ekki sagt. Hann reyndi nokkrum sinnum en sagði það illa svo Eggert Aron bað hann alltaf aftur þar til Stefán Matti sagði bara "Franklín".

(Franklín er grænn skjaldbökustrákur í teiknimynd sem Stefán Matti heldur mikið upp á.)

Okkur Eggerti fannst Stefán klóra sig vel út úr þessu vandamáli...


Stefán Matti er orðinn fjögurra ára!

Hæ,
Nú er Stefán Matti búinn að vera í talþjálfun frá áramótum og það gengur vel. Við vorum að labba niður á Skólavörðustíg, ég með hann í kerrunni, og ég benti á Hegningarhúsið og spurði hann hvort hann vissi hvaða hús þetta væri. "Þetta er fangelsi" sagði ég svo. Ég velti fyrir mér hvort hann skildi orðið fangelsi og bjó mig undir ýmsar skýringar á orðinu. Þá sagði hann: "Mamma, ég faðtur í keððunni, ég fangesi!!!"
Snúlli.com
Friðrika

I am Agatha Skúríó...

Hæ,

Strákunum er gefið mikið dót og ef þeir eru heima þegar ég er að taka til má engu henda. Jafnvel byrja þeir að leika með dót sem þeir hafa ekki litið á vikum, jafnvel mánuðum saman, þegar ég hendi því fram úr herberginu. Allt jafn mikilvægt.

Nýlega gekk ég inn í herbergið hans Stefáns Matta. Þar var allt á hvolfi því hann hafði verið að leika sér, sturta úr einum leikfangakassa og svo öðrum og aðeins hrært í og svo farið að horfa á skrýpó. Þarna voru gömul leikföng frá McDonalds sem máttu muna sinn fífil fegurri, minnisspil þar sem ekkert spil var lengur samstætt, púsl sem vantaði amk helminginn í og uþb 10.000 litlir og stórir bangsar! Ég þurrkaði úr glugganum, sópaði öllu út úr herberginu og tíndi inn í það aftur. Skipti restinni í henda, geyma.. Setti svo smábarnadót niður í geymslu og restina, sem var einn poki af dóti og 4 haldapokar af böngsum fór ég með í Sorpu (Góða Hirðinn gám). Herbergið var fínt og hreint þegar Stefán Matti kom heim og hann gekk inn í það og spurði: "Vá, vastagúðamamma?" sem útleggst: "Varstu að skúra, mamma?" Hann var hæst ánægður og tók ekki eftir að 40% af böngsunum hafði verið fjarlægður. Svo lengi sem Kiddi bangsi var á sínum stað...

Kveðja

Friðrika 


Þegar gengið er til hvílu að kvöldi dags...

Hæ,

Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að starf heimavinnadi húsmóður mælist 175% starf. Látum okkur nú sjá: ég elda mat næstum á hverju einasta kvöldi, eitthvað gott af eldhus.is, svo þarf að læra, baða, bursta, lesa bók, undirbúa aðeins næsta dag (t.d. þarf að taka til leikfimiföt).

Siggi var úti um daginn og ég og synirnir vorum öll komin upp í hjónarúm. Það hafði gengið á ýmsu en loksins vorum við öll komin undir sæng: "Góða nótt og ekki múkk!"...

Þá fær Stefán Matti hiksta.. Í gegnum myrkrið: "hikk,.... hikk,... hikk..." Eggert: "Oh, mamma látt'ann drekka vatnsglas liggjandi!".. Svo leið og beið.... Allt hljótt nema "hikk,... hikk,... hikk...,

Ég: "BÖÖÖÖ!" og hikstinn var á bak og burt!

Stefán Matti var svo hissa á þessum látum og spurði: "Hvað var þetta, mamma?" Svo byrjaði hann að garga að mér: "Bö... Bö... Bö!!!" Hættu nú! "Bö... Bö... Bö, nú þú Eggert!" Eggert: "Hvað kom yfir kerlinguna??? Mamma, ég hef aldrei heyrt þig æpa svona!"

 Kveðja

Friðrika 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.